Brek – Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar

Bláa kirkjan

29. June, 2022

Hljómsveitin Brek var stofnuð haustið 2018. Sveitin leikur aðallega frumsamda, alþýðuskotna, tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, en meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum.

Hljómsveitina skipa Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari og Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari.

Síðastliðin tvö ár hafa verið viðburðarík hjá hljómsveitinni þrátt fyrir heimsfaraldur en Brek fékk m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 fyrir sína fyrstu breiðskífu er kom út í fyrra og heitir í höfuðið á hljómsveitinni.