BRAS: Kvöldlestur í Sundhöllinni
29. September, 2025
Bókasafn Seyðisfjarðar stendur fyrir kvöldlestri fyrir börn í Sundhöll Seyðisfjarðar. Lesari er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings.
Gert er ráð fyrir að lesturinn hefjist um 19:00 og verði lokið fyrir 19:30 og því er tilvalið að koma í sund, hlusta á lestur og fara svo heim á náttfötunum.
Lesturinn er samstarfsverkefni Bókasafns Seyðisfjarðar og Sundhallar Seyðisfjarðar og er hluti af Bras – menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi.