BRAS: Hannaðu þitt eigið landnámsfólk

13. November, 2025

Fimmtudaginn 13. nóvember býður Minjasafn Austurlands börnum á aldrinum 7-12 ára upp á skemmtilega smiðju í tengslum við sérsýninguna „Landnámskonan“.
Rannveig Þórhallsdóttir, fornleifafræðingur, fræðir börnin um fornleifauppgröftinn sem farið hefur fram í Firði á Seyðisfirði síðustu ár, sem og um Fjallkonuna sem fannst á Vestdalsheiði árið 2004. Eftir fræðsluna fá börnin frjálsar hendur við að hanna sitt eigið landnámsfólk úr allskyns efniviði sem í boði verður. Landnámsfólkið mun svo prýða veggi Safnahússins.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í smiðjuna með því að senda tölvupóst á [email protected]
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við BRAS (Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi).
Secret Link