Bolli – Uppistandsýning

Askur Taproom

17. February, 2024

Hann kom, sá og sigraði með uppistandssýninguna sína ,,Hæfilegur” síðasta vor og seldi upp hverja einustu sýningu. Við erum svo spennt að fá hann á ASKURtaproom með nýju sýninguna hans “Bolli” sem frumsýnd verður 2. febrúar í Tjarnarbíó!

Sýningin „Bolli” er einlæg og grátbrosleg frásögn Bolla um hans eigin mennsku, dýrslegt eðli og atburði í hans lífi. Hvað fannst Bolla markverðast árið 2023 og hvernig snerti það hann.

Miðaverð er einungis 2.900kr og eru seldir við dyrnar rétt fyrir sýningu á ASKURtaproom