Atvinnuþróun á Austurlandi
9. April, 2025
Miðvikudaginn 9. apríl kl. 14:00 verður opinn fundur á samskiptaforritinu Teams um atvinnuþróun á Austurlandi, lánamöguleika Byggðastofnunar vegna atvinnurekstrar og styrki Byggðaáætlunar.
Fundurinn er hluti af fundaröð Byggðastofnunar og Landshlutasamtakanna.
Að fundi loknum gefst tækifæri til að bóka fund með atvinnuráðgjafa og/eða lánasérfræðingi Byggðastofnunar til að ræða einstaka málefni.