Ari Eldjárn – Uppistand á Borgarfirði eystra

Fjarðarborg

8. July, 2022

Föstudaginn 8.júlí kl.20:30-22:30

Ari Eldjárn leggur land undir fót í í sumar og kemur til Borgarfjarðar Eystri með skemmtilega og tilraunakennda uppistandssýningu þar sem hann prófar nýtt grín í bland við annað efni.

Sumt verður lesið af blöðum, annað samið á staðnum og brandaranir ýmist fyndnir eða ekki. Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að reka augun inn á verkstæðið og sjá hvernig uppistand verður til og slípast.

Missið ekki af áhugaverðri tilraun þar sem allt fær að fljúga!