Ari Eldjárn – Uppistand á Seyðisfirði

Herðubreið

11. July, 2022

Mánudaginn 11.júlí kl.20-22

Ari Eldjárn leggur land undir fót í í sumar og kemur til Seyðisfjarðar með skemmtilega og tilraunakennda uppistandssýningu þar sem hann prófar nýtt grín í bland við annað efni.

Sumt verður lesið af blöðum, annað samið á staðnum og brandaranir ýmist fyndnir eða ekki. Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að reka augun inn á verkstæðið og sjá hvernig uppistand verður til og slípast.

Missið ekki af áhugaverðri tilraun þar sem allt fær að fljúga!