Andri Ívars – Uppistandstónleikar í Tehúsinu

Tehúsið Hostel

21. October, 2022

Grínistinn og gítarsnillingurinn Andri Ívars stígur á stokk með glænýtt program. Í bland við hefðbundið uppistand mun Andri gera hinum ýmsu stílum tónlistar góð skil með gítarinn að vopni.
Andri Ívars var um árabil meðlimur dúettsins Föstudagslögin með Stefáni Jakobssyni söngvara þungarokkshljómsvetarinnar Dimmu en dúettinn flutti grín í bland við “akústískar” útsetningar af þekktum lögum. Auk þess hefur Andri komið fram með uppistandshópnum Mið-Íslandi
Hægt er að kaupa miða í gegnum tix.is