Amy Knoles: raftónleikar / electronic performance

24. May, 2017

Bandaríska raftónlistarkonan og slagverksleikarinn Amy Knoles heldur einstaka raftónleika í Seyðisfjarðarkirkju, miðvikudaginn 24. maí kl. 21:00. Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Moniku Frykova og Bláu verksmiðjuna.

Á tónleikunum flytur Amy tvö verk. Annarsvegar verkið Crazy N*****, sem er vísun í seríu eftir tónskáldið Julius Eastman (1940 – 1990), og hinsvegar verkið 9:8:7:5:4:3:1 sem er andsvar Amy við fyrra verkið. Amy er á tónleikaferðalagi á Íslandi og kemur fram nokkrum dögum seinna á Raflost, ásamt Monika Fryčová og Vasco Costa.

Aðgangseyrir er 1.000 kr., posi á staðnum.