Allra veðra von – Sirkussýning á Egilsstöðum

3. August, 2021

Allra veðra von – Sirkussýning á Egilsstöðum
Þriðjudaginn 3. ágúst kl. 18:00-19:00
Staðsetning: Selskógur
Verð: 3.500 kr. (Fjölskylduafsláttur ef keyptir eru 4 miðar)

Allra veðra von – nýsirkussýning fyrir fólk á öllum aldri, utandyra um allt land í sumar!

Sirkushópurinn Hringleikur sýnir ALLRA VEÐRA VON á Egilsstöðum 3. ágúst kl. 18:00, í Selskógi

Akróbatík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar myndir og loftfimleikar flétta saman sögur af mönnum og veðri.

Við hvetjum alla til að bóka fyrirfram, enda gerir það okkur kleyft að upplýsa miðahafa ef aðstæður krefjast þess.

Miðasala og nánari upplýsingar:
https://tix.is/is/event/11407/allra-ve-ra-von/

Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur áhorfanda á öllum aldri, auk þess að hljóta Grímuverðlaunin 2021 fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins!

Tveggja daga sirkusnámskeið fyrir börn verður haldið í Múlaþingi, nánari upplýsingar hér:
https://www.facebook.com/events/3003252486576803/

Sýningin er styrkt af Sóknaráætlun Austurlands og unnin í samstarfi við Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs.