Aldís Fjóla á Hammondhátíð

27. April, 2024

Austfirðingurinn Aldís Fjóla er fyrra atriði laugardagskvöldsins 27. apríl á Hammondhátíð 2024. Tónleikar fara fram á Hótel Framtíð

Aldís Fjóla hefur látið í sér heyra síðan hún tók upp sinn fyrsta hárbursta til að syngja í hann, heima í Brekkubæ á Borgarfirði eystra. Árið 2020 gaf hún út sína fyrstu sólóplötu, Shadows og aðra plötu í fyrra sem bar nafnið Pipedreams. Nýjasta lag hennar Quiet the storm sat á toppi vinsældarlista Rásar 2 í desember síðastliðnum.

Miðasala er í fullum gangi á midix.is