Aðventukvöld – Jóla pop up á fimmtudagskvöldi

Hús handanna

14. December, 2023

Fimmtudagskvöldið 14.október blásum við í Aðventukvöld í Húsinu og verðum með opið til kl. 22.00

Við eigum von á gestum frá Borgarfirði eystra, af Héraðinu og frá Neskaupsstað. Býsnagóð blanda af gómsætu súrdeigsbrauði, bjór/ snaps og þaraafurðum frá Bogganum, skartgripir ís & konfekt úr héraði og ljúfir tónar frá Neskaupsstað og okkar maður frá Svissnesku ölpunum mætir með gítar.

Hús Handanna verður með jólatilboð á jólaskrauti og alls konar fínt í jólapakkann….hlökkum til að sjá ykkur & krossum fingur með veðurspánna.