Aðalfundur Austfirskra krása

20. March, 2024

Stjórn Austfirskra krása boðar til aðalfundar miðvikudaginn 20. mars í húsnæði Austurbrúar, að Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum. Fundurinn hefst klukkan 16:00.
Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf, skv. samþykktum félagsins.
Vakin er athygli á því að lögð verður fram tillaga að nafnabreytingu og nýjum samþykktum fyrir félagið, en tillöguna má finna á austurbru.is
Öll sem hafa áhuga á framleiðslu afurða úr hráefni frá Austurlandi eru hvött til að mæta.