Að heiman og heim

Náms- og atvinnulífssýning Austurlands

1. September, 2018

Félagið Ungt Austurland stendur fyrir náms- og atvinnulífssýningunni Að heiman og heim þann 1. september á Egilsstöðum. Helsti styrktaraðili sýningarinnar er Samband sveitarfélaga á Austurlandi og er verkefnið eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Austurlands.

Markmið sýningarinnar er að kynna fyrir ungu fólki, sem er að hefja eða ljúka námi, fjölbreytt og spennandi framtíðartækifæri á Austurlandi. Meðfram sýningunni verða fyrirlestrar um tengd málefni.

Ef þú ert ekki viss hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór þá er sýningin eitthvað fyrir þig. Þar getur þú kynt þér starfs og framatækifæri á Austurlandi, námstækifæri innan sem utan fjórðungs og fengið ráðleggingar um hvernig er best að ná starfstengdum markmiðum sínum.

Þá er sýningin frábært tækifæri fyrir fyrirtæki og stofnanir til að kynna fjölbreytta starfsemi fyrir mannauði framtíðarinnar.

Endilega vertu með!

Nánari upplýsingar veita Bára Dögg í síma 865 7080 eða Ásta Hlín í síma 846 6218.