Á fætur í Fjarðabyggð: 28.júní
28. June, 2024
Kl. 10:00
- Svartafjall 1021 m (eitt af fjöllunum fimm í gönguvikunni)
Mæting á gamla veginum yfir Oddsskarð, Eskifjarðar megin.
Gengið merktu gönguleiðina á tindinn. Frábært útsýni yfir Norðfjörð og Reyðarfjörð.
Hátíðleg stund í lokin, þar sem verið er að klára fjöllin fimm í gönguvikunni.
Fararstjóri Kristinn Þorsteinsson, s. 864 7694.
Verð kr. 3.000 –
Kl. 14:00
- Fjölskyldu fjallganga á Sellátratind (göngugarpaferð)
Mæting við skíðaskálann í Oddsskarði.
Gengið frá skíðaskálanum og upp Sellátradal og þaðan út á tindinn.
Þetta er jafnframt síðasta gangan í göngugarpaleik gönguvikunnar.
Fararstjóri Sædís Eva Birgisdóttir, s. 846 1783.
Verð kr. 1.000 –
Kl. 20:00
Sjóræningjakvöldvaka á Mjóeyri við Eskifjörð
Lifandi tónlist, veitingar, varðeldur, fjársjóðsleit og fleira skemmtilegt fyrir krakka á öllum aldri.
Sjóræningjakvöldvakan er í boði Kaldvík laxeldi.