2×2 Rýmisskynjun: Ævintýraferðir

Stríðsárasafnið Reyðarfirði

15. July, 2022 - 16. July, 2022

Í þátttökugjörningnum ‘2×2 Rýmisskynjun: Ævintýraferðir’ leitast hópurinn Kunningjar við að víkka út skilning áhorfenda á rýmisskynjun og skipulagi. Hópurinn býður áhorfendum að staldra við, beina sjónum að hinu ómerkilega og vanmetna og upplifa hvað gerist þegar við lesum í umhverfi nærumhverfisins út frá tungumáli leikhússins. Ef til vill verður varpað fram spurningum eins og „Til hvers ætlast þetta grindverk af mér? Dreymir kantsteina? Er þessi ruslafata trúlaus?“

Verkið leikur sér með form leiðsagðra kynnisferða líkt og fjórhjólaferða, jöklaskoðana og kayakferða þar sem áhorfendur sitja lítinn fyrirlestur um þætti rýmisskynjunar, klæða sig í galla, og fylgja síðan leiddri rýmisskynjun með fókuspunktum, hugleiðingum og sjálfstæðum verkefnum.

Listahópurinn Kunningjar samanstendur af Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur og Arnari Geiri Gústafssyni. Þau eru bæði stofnmeðlimir sviðslistahópsins CGFC og hafa starfað innan hans síðan 2015. Hópurinn Kunningjar er stofnaður vegna sameiginlegs áhuga á rýmum og rýmisskynjun í nærumhverfi okkar og leitast við að kanna snertifleti og skapa þráð á milli sviðslistar, félagsfræði og borgarskipulagsfræði. ‘2×2 Rýmisskynjun: Ævintýraferðir’ er þeirra annað verk sem Kunningjar.

Hver sýning er um klukkutími og hámarksfjöldi fyrir hverja sýningu er 16 manns.
Hallveig er með BA-gráðu í sviðslistum og BA-gráðu í sviðsmyndahönnun. Hún hefur starfað sem sviðshöfundur og sviðsmyndahönnuður, flytjandi og leikstjóri og hefur undanfarið fært sig nær og nær heimildaleikhúsi og rannsókarverkum.

Arnar er með BA-gráðu í félagsfræði, MSc-gráðu í borgarskipulagsfræðum og diplómu í sjónlistum. Undanfarin ár hefur hann stundað starfsnám hjá UN-HABITAT, starfað sem sviðshöfundur með CGFC, borgarskipulagssérfræðingur hjá Skipulagsstofnun og við gerð myndlistar- og vídjóverka.