Gildran – Lengi lifi rokkið !

10. May, 2024

GILDRAN – LENGI LIFI ROKKIÐ!
Það er komið að því, Gildran mætir Austur og ætlar að rokka feitt í Frystihúsinu á Breiðdalsvík. Ein magnaðasta rokkhljómsveit Íslandssögunnar fer í gegnum ferillinn og spilar öll bestu lögin og meira til.
Gildran kom aftur saman haustið 2023 eftir smá pásu og hefur nú leikið nokkra tónleika þar sem alltaf hefur verið uppselt og stemningin frábær en hljómsveitin var stofnuð árið 1985 og fagnar því brátt 40 ára afmæli. Sveitin er skipuð þeim Þórhalli Árnasyni, Karli Tómassyni, Birgi Haraldssyni og Sigurgeiri Sigmundssyni. Með þeim er enginn annar en snillingurinn Pálmi Sigurhjartarson á hljómborð!
Ekki missa af Gildrunni – Goðsögn í lifanda lífi svo ekki sé meira sagt!
Miðaverð 6.900 kr.
Tryggið ykkur miða í snatri því þetta verður snilld sem engin má láta fram hjá sér fara