Hellisbúinn: 30 ára afmælissýning

16. October, 2021

Hellisbúinn: 30 ára afmælissýning
Laugardaginn 16. október kl. 20:00
Valaskjálf, Egilsstöðum

Ef einhvern tímann hefur verið tilefni til að gleðjast og kitla hláturtaugarnar, þá er það núna! Hellisbúinn er einn vinsælasti einleikur heims. Hellisbúinn hefur þegar verið sýndur í 57 löndum, yfir 1000 borgum og frá upphafi hafa tugir milljóna um allan heim séð Hellisbúann.

Jóel Sæmundsson færir Hellisbúanum nýtt líf í glænýrri sviðsetningu hans og leikstjórans Emmu Peirson en sýningin hefur verið endurskrifuð að fullu og uppfærð í takt við tímann. Frábær skemmtun þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og margar kunnulegar aðstæður koma upp. Í Valaskjálf lofum við frábærri kvöldstund, fullri af hlátri og gleði!