Sunnudagsganga á Sandhólatind í Seyðisfirði
20. June, 2021
Sunnudagsganga með Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
20. júní kl. 10:00
Erfiðleikastig 3
Í byrjun er slóðanum fylgt upp í mynni Vestdals en ofan við fossa er göngubrú yfir Vestdalsá. Frá brúnni er síðan stefnt upp í hlíðina sem er nokkuð brött á köflum og farið upp öxl á suð-vestanverðu fjallinu alla leið á toppinn.
Á hæsta punkti Sandhólatinds er lítil varða og staukur sem hýsir gestabók. Sandhólatindur er hæsti tindur við Seyðisfjörð með glæsilegu útsýni til allra átta í góðu veðri.
Mesta hæð: 1.154 m
Hækkun: 1.120 m
Gönguvegalengd: 9-10 km
Göngutími: 6-8 klst. (uppgöngutími 3-4 klst)
Göngubyrjun: Frá Háubökkum (30 m)
Umsjón: Katrín Reynisdóttir
Allar dagsferðir: Verð er 500 krónur og mæting við hús Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8 á Egilsstöðum nema annað sé tekið fram. Fólk er hvatt til að taka þátt í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri.