17.júní í Múlaþingi
17. June, 2024
Það verða hátíðarhöld í öllum kjörnum sveitarfélagsins þann 17. júní.
Dagskráin er metnaðarfull og flest ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Íbúar eru hvött til þess að gera sér glaðan dag og hægt er að nýta sér dagskránna hér að neðan til að skipuleggja daginn.
Árið í ár er merkilegt að því leitinu til að lýðveldið er 80 ára og til þess að fagna því sérstaklega verða lýðveldiskökur í boði fyrir gesti og gangandi að hátíðardagskrá lokinni í öllum kjörnum. Þar að auki var í tilefni afmælisins gefin út bókin Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, og geta áhugasamir tryggt sér frítt eintak á eftirfarandi stöðum á hefðbundnum opnunartíma þeirra:
- Bókasafni Héraðsbúa
- Bókasafni Seyðisfjarðar
- Bókasafni Djúpavogs
- Hreppsstofunni Borgarfirði Eystri
Sveitarfélagið óskar íbúum innilega til hamingju með þjóðhátíðardaginn. Hér fyrir neðan má svo lesa sér til um dagskrá kjarnanna:
Egilsstaðir
10:00 Blöðrusala í Hettunni
10:30 Fjölskyldustund í Egilsstðakirkju
11:00 Skrúðganga frá kirkju í Tjarnargarð
Lúðrasveitin endar skrúðgönguna með tónlistaratriði og svo tekur við fimleikasýning
11:30-12:30 Móttaka skúlptúra
11:30-14:15 Skemmtilegt í garðinum, hoppukastalar, andlitsmálun, hestar og sjoppa
13:00 Hátíðardagskrá:
- Hátíðarræða
- Tónlistaratriði
- Fjallkona
- Árleg viðurkenning
- Rótarý
- Leikfélagið
- Verðlaun fyrir skúlptúra
- Tónlistaratriði
Opið hús og frítt í Safnahúsið
-Athugið, ef veður verður vont mun dagskráin færast inn í íþróttahúsið.
Seyðisfjörður
11:00 Blómsveigur lagður á leiði Björns í Firði
12:30 17. júní hlaup Hugins fyrir 12 ára og yngri krakka. Mæting við Seyðisfjarðarkirkju
13:00 Hátíðardagskrá í garðinum við Seyðisfjarðarkirkju:
- Hátíðarmessa
- Fjallkona
- Hátíðarávarp
- Tónlistarflutningur
- Babúbílar
- Hoppukastali
- Sápubraut
- ofl
15:00 Tækniminjasafnið opnar sýninguna „Konur starfa“ í útigalleríinu við Lónsleiru – Frítt inn á safnið frá klukkan 13:00 – 17:00
Ýmis tilboð á veitingastöðum bæjarins í tilefni dagsins
Djúpivogur
10:00 Þjóðleg morgunstund í Löngubúð, gestir í þjóðbúningum fá glaðning, andlitsmálning, ratleikur og fleira
13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Djúpavogskirkju
14:15 Skrúðganga frá Djúpavogsskóla að íþróttasvæði Neista
14:30 Hátíðardagskrá:
- Fánahylling
- Hátíðarræða
- Brekkusöngur
- Leikir og fjör
- Vatnsrennibraut
- Veitingar í Neista
Borgarfjörður
13:00 Skrúðganga frá Heiðinni og upp á íþróttavöll.
Hátíðardagskrá, lifandi tónlist, leikir og sprell á íþróttavellinum
15:00 Kaffihlaðborð í Fjarðarborg