Dagar myrkurs 2025
Dagar myrkurs 2025 var óvenju vegleg hátíð og byggðakjarnar Austurlands tóku heldur betur vel við sér og héldu skemmtilega, draugalega, huggulega en jafnframt fjölbreytta viðburði dagana 27. október – 2. nóvember.
Breiðdælingurinn Elva Bára Indriðadóttir bar sigur úr býtum í ljósmyndasamkeppni hátíðarinnar og fékk 50.000 krónur í verðlaun auk þess að mega monta sig í heilt ár yfir því að vera sigurvegari keppninnar.
Sigurmynd Elvu Báru var tekin á Breiðdalsvík þar sem börn voru í nammileit með vasaljós og myrkrið skapaði fallega senu.
Djúpivogur
27. október – 2. nóvember
Draugaleg stemning Hafið bistró
28. október
Ljósasund Sundlaug Djúpavogs
1.-3. bekkur kl. 17:00-18:00
4.-7. bekkur kl. 18:30-20:00
29. október
Skrímslavöfflur Tryggvabúð, kl. 15:00
Bláar vöfflur, grænn rjómi með örmum í Tryggvabúð. 600 kr. á manninn.
Heiðmyrkur Gamla kirkjan, kl. 17:00-18:00
Öldum saman hafa íbúar á Búlandsnesi þurft að treysta á ratvísi sína þegar hnausþykk þokan læðist inn yfir nesið og myrkvar allt. Stundum standa sólroðnir klettarnir upp úr þó allt sé myrkvað þar á milli. Þetta kalla heimamenn heiðmyrkur og nú reynir á ratvísina þegar heiðmyrkvinn tekur yfir gömlu krikjuna á Dögum myrkurs.
Ljósasund Sundlaug Djúpavogs
8.-10. bekkur kl. 18:30-20:00
30. október
Ljósasund Sundlaug Djúpavogs
8.-10. bekkur kl. 18:30-20:00
Töfrar í Hálsaskógi kl. 16
Árleg mæting töfratrésins. Farið af stað með vasaljósin og tréð sem glitrar þegar ljósgeislinn fellur á það leitað uppi.
Boðið verður upp á kakófordrykk í Aðalheiðarlundi. Við kveikjum upp í eldstæðinu og sjáum til hvort það verður stemming fyrir pinnanbrauðsbakstri, sykurpúðagrilli eða einhverju skemmtilegu sem okkur dettur í hug meða við bíðum eftir að myrkrið læðist inn yfir skóginn.
Hryllilega smár smáréttamatseðill Hótel Framtíð
Gildir til og með 1. nóvember.
Hryllingsbíó Hlaðan á Teigarhorni, kl. 20
31. október
Grikk eða gott ? kl. 18:00-20:00
Þau sem vilja taka á móti krúttlegum en samt hræðilegum verum, setji ljóstýru fyrir utan húsið hjá sér til að bjóða þær velkomnar
Hrekkjavökupartý Helgafell, kl. 16:30-18:00
Zion og Foreldrafélag Djúpavogsskóla halda hryllilegt hrekkjavökupartý. Tjúttum saman áður en gengið verður í hús!
Faðirvorahlaup kl. 17:30
Hlaupið er með aðeins breyttu sniði í ár vegna öryggis: Byrjað er við húsið Birkihlíð, í enda götunnar Hammersminni. Hlaupinn er flugvallarhringurinn, komið hjá húsinu Holti, þar beygt til hægri og hlaupið út í Neista
Kósíkvöld í sundi Sundlaug Djúpavogs, kl. 19:00-20:15
Hæglætis stund í sundi. Kertaljós og tónlist.
Hrekkjavökupartý Faktor brugghús, kl. 21
Við fögnum komu jólabjórsins. Mætum í hryllilegum búningum og skálum í botn!
1. nóvember
Búningapartý Neista Íþróttahúsið, kl. 11-12 fyrir leikskólabörn.
Sviðaveisla í Hlöðunni Bragðavöllum, kl. 18
Árleg sviðaveisla. Kvöldið er tileinkað sauðkindinni með ljúffengum mat, listasýningu og notalegri stemningu í sögulegu umhverfi Bragðavalla. Húsið opnar kl. 18 og maturinn hefst kl. 19. Miðaverð er 5.900 krónur. Bókanir fara fram á [email protected] eða í síma 898 6056. Takmarkað pláss, svo við hvetjum gesti til að tryggja sér sæti sem fyrst.
Breiðdalsvík
30. október
Tíu tónleikar Beljandi brugghús, kl. 20:30
Gítarleikarinn Jón Hilmar Kárason leikur nýja og notaða tónlist ásamt sérstökum gesti, gítarleikaranum Guðmundi Arnþóri.
Viðburður á Facebook
2. nóvember
Vasaljósa-nammileit Lækjarkot, kl. 17:30.
Börn mæta með vasaljós og leita að nammi í myrkrinu.
Borgarfjörður eystri
29. október
Hrekkjavökubingó í grunnskóli Borgarfjarðar eystra kl. 17:00
Nemendur skólans sjá um viðburðinn sem fer fram í miðrými skólans.
31. október
Galdra-Loftur Bakkagerðiskirkja, kl. 20:00
Leikfélag Fljótsdalshéraðs stendur fyrir leiklestri á leikritinu Galdra-Loftur í aðdragana Allrasálnamessu.
1. nóvember
Bjúgnakvöld og bjórlestin Blábjörg Resort, kl. 20:00
Ljúffengir réttir, búnir til úr heimagerðum bjúgum. Bjórlestin kemur til byggða með jólabjórinn.
Fljótsdalshérað
30. október
Galdra-Loftur Áskirkja í Fellum, kl. 20:00
Leikfélag Fljótsdalshéraðs stendur fyrir leiklestri á leikritinu Galdra-Loftur í aðdragana Allrasálnamessu.
31. október
Þjóðsögur í Hróarstungu Geirstaðakirkja, kl. 20:00
Lesnar þjóðsögur við kertaljós í kirkjunni (Litla-Bakka í Hróarstungu).
Stöðvarfjörður
25. október
Haustsamkoma Heiðmörk 13, kl. 17:00-20:00
Boðið upp á súpu, bakkelsi, nammi og heitt kakó í garðinum/bílskúrnum. Einnig verður hrekkjavökkuspurningaleikur fyrir allan aldur.
28. október
Draugaganga Nýgræðingur, kl. 18:00
Gengið í gegnum Nýgræðinginn á Stöðvarfirði þar sem furðuverur þessa heims og annars liggja í leyni og gera sitt besta til þess að láta þér bregða.
30. október
Kvöldverður félags eldri borgara Balaborg, kl. 18:00
Jaspis, félag eldri borgara, verður við með opið á Balaborg, í húsi eldri borgra. Grín og gaman. Bjóðum upp á svarta grauta og súpu og svartari kökur en nokkru sinni fyrr í eftirrétt.
1. nóvember
Draugahús Sköpunarmiðstöðin, kl. 15:00-18:00
Fyrir alla aldurshópa: Yngri hópur kl. 15 en svo verður hækkað í hryllingnum kl. 17.
Fáskrúðsfjörður
Enginn skráður viðburður.
Reyðarfjörður
27. október
Grikk eða gott kl. 17:00-19:00
Búningaklædd börn banka upp á í völdum húsum á Reyðarfirði (sjá Facebook-hóp). Galdra-Loftur leiklestur
31. október
Myrkvað tilboð Veiðiflugan, kl. 11:00-20:00
Glæsilegir afslættir á öllum fatnaði og skóm þennan eina dag.
Eskifjörður
28. október
Tíu tónleikar Tónlistarmiðstöð Austurlands, kl. 20:30
Gítarleikarinn Jón Hilmar Kárason leikur nýja og notaða tónlist ásamt sérstökum gesti: Birgi Baldurssyni.
Viðburður á Facebook
31.október og 1. nóvember
Rómantískt villibráðarkvöld Randulffs sjóhús, kl. 20:00
Vinur okkar, Sigurður Daði Friðriksson, mun sjá um allskonar villibráðakræsingarnar og Andri Bergmann um ljúfa tóna í upphafi kvölds.
Borðapantanir: 6960809 eða [email protected]. Verð: 14.900 kr. á mann. Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00. Tilboð á allri gistingu á Mjóeyri þessi helgi.
Vopnafjörður
28. október
Svartur dagur Leikskólinn, kl: 08:00-17:00
Svartur dagur á leikskólanum, börn mega koma með vasaljós með sér.
29. október Sundlaugin kl: 18:00-22:00
Lengri opnun í sundi með kertaljósum og kakó.
30. október
Draugahús Félagsmiðstöðin
Félagsmiðstöðvar drekans í Sláturhúsinu. Opið sem hér segir: Allir velkomnir 16:00-17:00 1.-4.bekkur 16:30-17:00 5.-7.bekkur 17:00-17:45 8.-10.bekkur 19:00-20:00
Rökkurstund Hámundarstaðir 2, kl. 19:00
Upplestur, ratleikur og gæðastund með hestum Vonarljóss.
31. október
Búningadagur hjá leikskólanum
Halloween á Öldunni N1 skálinn, allan daginn
Halloween stemmning í sjoppunni: Tilboð á matseðli, hræðilegar skreytingar og starfsfólk í búningum. Nammi fyrir börnin.
Grikk eða gott ? kl: 17:00-20:00
Börn í búningum fara á stjá og safna nammi. þau sem bjóða börnin velkomin setji skreytingar við húsið
1. nóvember
Vasaljósa íþróttaskóli kl:11:00-12:00
Vasaljósa íþróttaskóli fyrir leikskólaborgn. Endilega mæta með vasljós !
Bingó í Fossgerðikl: 20:30
Six Rivers býður í bingó. Bjór á dælu, námmi í skálum, kerti og kósíheit ! 20 ára aldurstakmark
2. nóvember
Tíu tónleikar Kaupvangur, kl. 16:30
Gítarleikarinn Jón Hilmar Kárason leikur nýja og notaða tónlist ásamt sérstökum gesti: Birgi Baldurssyni.
Viðburður á Facebook
Félagsvist Glófaxa Mikligarður kl 19:30
Glófaxi stendur fyrir félagsvist í Miklagarði. 100 krónurinn sem rennur í uppbyggingu á félaginu og satarfi þess. kaffi og með því á boðstólnum.
Bókasafn Vopnafjarðar veðrur með kósí stemmningu á opnunartíma alla vikuna, litablöð og litir og getraun.
Fljótsdalshreppur
28. október
Hrekkjavökuföndur Snæfellsstofa, kl. 16:00-19:00.
Föndrum saman fyrir hrekkjavökuna úr endurnýttum hráefnum.
Neskaupstaður
27. október
Kósí afmælisveisla Safnahúsið, kl. 17:00-19:00
Náttúrustofa Austurlands býður ykkur í 30 ára afmælisveislu. Kósíheit og kertaljós verða í fyrirrúmi. Stuttar kynningar verða á verkefnum Náttúrustofunnar og sum hver sérstaklega miðuð að börnum. Frekari dagskrá auglýst á miðlum Náttúrustofunnar. Léttar veitingar. Öll velkomin, bæði börn og fullorðnir í notalega, fræðandi og nærandi stund.
Hryllingshús Verkenntaskóli Austurlands, kl. 17:00-20:00
Árlegur hrekkjavökuviðburður sem listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands stendur fyrir á heimavist skólans. Húsið er opið öllum þeim sem þora að láta hræða sig en hentar ekki ungum börnum.
1. nóvember
Tónleikar Tónspil
Í tilefni útgáfu sólóplötu Halldórs Warén en hann hefur verið viðriðin tónlist lengi, beint og óbeint, í gegnum útgáfufyritækið WarénMusic. Hann spilar með orgeltríóinu VAX, gaf hann út spiladósardiskinn Bíum Bíum, ásamt því að framleiða, hljóðrita og spila á hljómplötunni Kjuregej (Lævirkinn) sem fékk meðal annars íslensku tónlistarverðlaunin. Mest hefur Halldór framleitt, eða unnið með öðrum listamönnum við þeirra hugarefni, en kemur fram í þetta sinn eingöngu með eigið efni, tónlistin er saminn á 20 ára tímabili og er öll með enskum texta.
Egilsstaðir
29. október
Dagar myrkurs Safnahúsið, kl. 16:00-19:00
Söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum halda upp á Daga myrkurs með fjölbreyttum hætti.
kl. 16:00 – Lesið fyrir börnin á bókasafninu.
kl. 16:00-18:00 – Skornar út hrekkjavökuluktir úr rófum á Minjasafninu. Athugið að koma þarf með rófur með sér en veitt verður tilsögn og sérstök áhöld verða á staðnum.
kl. 16:30-18:00: Hrekkjavökuföndur fyrir börnin á bókasafninu.
kl. 18:00 – Sögustund og kvæðahjal. Alvöru baðstofustemming með kvæðasöng, upplestri á frásögnum, sögum og ljóðum.
Hrekkjavökuratleikur Tjarnargarðurinn, kl. 20:00.
Myrkraþrautir í boði Leikfélags Menntaskólans á Egilsstöðum. Mæting við sviðið. Ath! Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Myrkrajazz Sláturhúsið, kl. 20:00
Sándor Kerekis og Bergljót Halla Kristjánsdóttir flytja ljúfar djassballöður. Miðaverð 2.500 kr. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Langt út/Far out.
30. október
Leiðsögn á einfaldaðri íslensku Minjasafn Austurlands, kl. 17:00
Við skoðum hluti sem fólk notaði til að fá ljós áður en rafmagn kom. Leiðsögumaður er Michelle Mielnik. Við hvetjum öll þau sem eru að læra íslensku sem annað mál til að koma í safnið.
Myrkrabað Vök baths, kl. 19:00-22:00
Við ætlum að slökkva öll ljós í böðunum og hafa eins dimmt og mögulegt er. Kertaljós og kósí stemmning og 25% afsláttur af kokteilum á laugarbar.
31. október
Grikk eða gott? kl. 17:00-19:00
Búningaklædd börn banka upp á í völdum húsum á Egilsstöðum og Fellabæ (sjá Facebook-síðu).
Tónleikar Tehúsið
Í tilefni útgáfu sólóplötu Halldórs Warén en hann hefur verið viðriðin tónlist lengi, beint og óbeint, í gegnum útgáfufyritækið WarénMusic. Hann spilar með orgeltríóinu VAX, gaf hann út spiladósardiskinn Bíum Bíum, ásamt því að framleiða, hljóðrita og spila á hljómplötunni Kjuregej (Lævirkinn) sem fékk meðal annars íslensku tónlistarverðlaunin. Mest hefur Halldór framleitt, eða unnið með öðrum listamönnum við þeirra hugarefni, en kemur fram í þetta sinn eingöngu með eigið efni, tónlistin er saminn á 20 ára tímabili og er öll með enskum texta.