Allar leiðir slæmar

Sýning í Skaftfelli

3. February, 2018 - 8. April, 2018

Allar leiðir slæmar er afrakstur námskeiðs sem útskriftarnemar við Listaháskóla Íslands, myndlistardeild, tóku þátt í aðdraganda sýningarinnar. Námskeiðið var haldð í samstarfi við Dieter Roth Akademíuna og stýrt af Birni Roth og Kristjáni Steingrími Jónssyni.

Nemendur komu í fallegu veðri en áður en langt um leið skall óveður á. Allar leiðir út úr firðinum voru lokaðar. Sum þeirra neyddust til að leita á náðir bæjarbúa sem af góðmennsku sinni lánuðu þeim betri föt. Það verður áhugavert að sjá hvort þessar óvenjulegu aðstæður munu hafa áhrif á viðfangsefni sýningarinnar Allar leiðir slæmar í Skaftfelli – myndlistarmiðstöð Austurlands.

Opið daglega 15:00-21:00.