Vefnaður með Ragnheiði B. Þórsdóttur-framhald

29. June, 2026 - 3. July, 2026

Staðsetning: Hallormsstaðaskóli
Dagsetning: 29. júní – 3.júlí 2025
Tímasetning: 09:00 – 16:00
Námskeiðsgjald: 95.000kr
Sérfræðingur: Ragnheiður Björk Þórsdóttur (Ragga) textíllistamaður og vefnaðarsérfræðingur
Innifalið
Kennsla og fræðsluefni frá Ragnheiði Björk, afnot af vefstól og aðgangur að Baðstofu, vefjarefni innifalið í prufustykki samkvæmt verkefnum vinnustofunnar.
Hádegisverður alla námskeiðsdagana ásamt kaffi og te.
Vefnaðarnámskeið fyrir lengra komna með Ragnheiði Björk vefnaðarsérfræðingi á Baðstofu Hallormsstaðaskóla.
Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa verið á byrjendanámskeiði og/eða hafa góða grunnkunnáttu í vefnað. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, útreikninga og bindifræði/vefnaðarfræði. Farið verður í tvöfaldar bindingar, kaflaskipt munstur og fleira sem sprettur upp út frá áhuga nemenda á efninu.
Dvöl í Hallormsstaðaskóla
Njóttu þess að dvelja í Hallormsstaðaskóla á námskeiðstíma með skóginn umvafinn í kringum þig. Gisting getur verið styrkhæf – allar upplýsingar um kostnað er að finna í gjaldskrá skólans. Sendu okkur tölvupóst [email protected] eða hringdu í síma 864-8088 til að bóka herbergi.
Kannaðu þinn rétt á ferða-, námskeiðs- og tómstundastyrk verkalýðsfélaga og fyrirtækja. Stéttarfélög geta beðið um staðfestingu á þátttöku.
Nánari upplýsingar og skráning:
Secret Link