Hlýtt heimili – fræðsla um varmadælur og styrki

7. January, 2026

Austurbrú, Búnaðarsamband Austurlands og Eygló bjóða íbúa Austurlands velkomna á fundi víða um fjórðunginn þar sem fjallað verður um varmadælur og aðra valkosti í húshitun, auk þeirra styrkmöguleika sem standa til boða fyrir heimili sem vilja spara orku og lækka rekstrarkostnað. Sérfræðingur frá Umhverfis- og orkustofnun mun halda fræðsluerindi og verkefnastjóri Eyglóar verður einnig með stutta kynningu á varmadælum. Að loknum kynningum verður tími fyrir umræður og spurningar frá fundargestum. Viðburðinn má finna hér:

Secret Link