Sunnudagsganga: Strútsfoss

1. June, 2025

Sunnudagsganga: Strútsfoss 1 skór 1. júní
Fararstjórn: Jarþrúður Ólafsdóttir
Brottför kl. 10:00 frá skrifstofu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs Tjarnarási 8. Keyrt inn Fljótsdal að innsta bæ í Suðurdal, Sturluflöt. Þaðan er gengið upp með Fellsá austanvert í Villingadal að gestabók og stimpli.
Tiltölulega auðveld ganga upp greinilegan slóða.
Vegalengd: Um 8,5 km. Hækkun: 230m.