Strengir í Tónspili: Mikael Máni og KORMÁKUR

27. October, 2024

Mikael Máni – Guitar Poetry
Mikael Máni gítarleikari og tónskáld mun flytja blöndu af nýjum og gömlum
lögum eftir sig ásamt nokkrum ábreiðum. Mikael gaf út sína fyrstu sólógítar
plötu ‘Guitar Poetry’ í mars 2024 en platan kom út hjá þýska útgáfufyrirtækinu
ACT sem er eitt af leiðandi jazz útgáfum í Evrópu. Tónlistin er samin í stíl sem
heyrir ekki til venjubundna greina hugtaka jazz. Það má heyra áhrif frá
þjóðlagatónlist, bergmáli frá blús, bandarískri alþýðutónlist og einstökum
kvikmyndatónlistar blæ. Í líflegum og flæðandi spuna sameinar hann þetta á
ljóðrænan hátt með skýrleika og hispursleysi söngvaskálds. Lögin segja sögur,
opna rými og landslag, teikna myndir og eru spegilmynd gítarleikara sem er jafn
óhefðbundinn og hann er aðgengilegur, úthverfur introvert sem segir sögur í
tónlistarlegri tjáningu af tilfinningu.
Fjölmiðlar erlendis hafa tekið eftir einstaka stíl Mikaels og einlægri spilamennsku hans sem þeir keppast við að dásama. ‘Guitar Poetry’ fékk meðal annars 4 og 1/2 stjörnu dóm í Downbeat sem er virtasta jazz tímarit síðustu áratuga. ‘Innermost’, plata Mikaels hlaut einnig Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir jazz plötu ársins 2023.