Lúðrasveitartónleikar

12. October, 2024

Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs og Lúðrasveit Reykjavíkur halda saman landsmót Sambands íslenskra lúðrasveita dagana 11.-12. október 2024 á Egilsstöðum.
Af því tilefni verða stórtónleikar í Sláturhúsinu laugardaginn 12. október kl. 17:00. Þar mun sameinuð lúðrasveit mótsins leika. Á efnisskránni eru þekkt lög með Led Zepplin, The Doors, Meat Loaf, Kansas, Guns N’ Roses og AC/DC. Hljómsveitarstjórar eru Jarl Sigurgeirsson, Sóley Þrastardóttir og Tumi Torfason.
Aðgangur er ókeypis og öll eru innilega velkomin