Prjónaganga Bókasafns Héraðsbúa og Nálahússins

23. September, 2024

Prjónaganga Bókasafns Héraðsbúa og Nálahússins í tilefni Íþróttaviku Evrópu.
Hér áður fyrr var algengt að fólk gengi prjónandi milli bæja og við byrjum gönguna í Nálahúsinu
þar sem Heiður tekur á móti okkur og kynnir starfsemina fyrir okkur.
Þaðan göngum við prjónandi á Bókasafnið þar sem verður heitt á könnunni og
kynning á þeim handavinnubókum sem til eru á safninu.
Öll prjónandi velkomin, klædd eftir veðri