Fyrirlestur um sorg barna og unglinga

26. September, 2024

Matthildur Bjarnadóttir, prestur og verkefnastjóri Arnarins, flytur fyrirlestur um sorg barna og unglinga 26. september klukkan 17:00 í Eskifjarðarkirkju.
Fræðslan er sérstaklega ætluð uppalendum og öllum þeim sem starfa með ungu fólki. Farið verður yfir helstu einkenni barna í sorg á ólíkum þroskaskeiðum og hvað gagnast börnum vel í því verkefni að takast á við missi. Örninn er félag sem styður börn á aldrinum 9-16 ára sem hafa misst náinn ástvin. http://xn--arnarvngir-i6a.is/