Uppbyggingarsjóður Austurlands: Vinnustofa

9. October, 2024

Hlutverk Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands, auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarverkefna. Úthlutun fyrir verkefnaárið 2025 fer fram í desember 2024 en opið verður fyrir umsóknir frá 11. september til 31. október. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2025. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á stuðning við nýsköpun í atvinnustarfsemi ungs fólks á aldrinum 20-35 ára.
Á umsóknatímanum verða haldnar vinnustofur um allt Austurland þar sem umsækjendur geta fengið kynningu og leiðsögn varðandi umsóknarferlið.
Athugið! Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar.
Vinnustofa á Egilsstöðum fer fram á Tjarnarbraut 39 frá klukkan 15:30-17:30
Skráning: https://forms.office.com/e/HcsQnt0b2U