Bakgarðshlaup á Reyðarfirði

14. September, 2024

Við ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og halda okkar eigin Bakgarðshlaup á Reyðarfirði.
Í þetta sinn verður hlaupið frá Eyrinni Heilsurækt og hringurinn svipaður þeim á síðasta ári, við munum setja inn mynd/track af hringnum hér inn mjög fljótlega.
Einnig verður boðið upp á prufuhring þann 25. ágúst.
Gjald fyrir þátttöku er 2500 kr, á staðnum verða hóflegar veitingar fyrir hlaupara og allur ágóði eftir kostnað mun renna til góðs málefnis. Í þetta sinn munum við styrkja Birtu – landssamtök foreldra/forráðamanna sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega