Við Sæinn – Myndlistasýning

15. August, 2024 - 31. August, 2024

Fimmtudaginn þann 15. ágúst mun sýningin ,,Við sæinn“ eftir listakonuna ,,ArtSteinSig“, Steinunni Sigurðardóttur, opna í Randulffssjóhúsi. Opnun listasýningarinnar verður kl. 16:00 og verður opin til 22:00 sama kvöld.
Steinunn mun sýna nýjustu verkin sín og kallar hún sýninguna að þessu sinni ,,Við sæinn“ en þangað sækir hún einmitt innblástur í verkin.
Sýningin verður svo áfram uppi út mánuðinn og hægt verður að skoða verkin á opnunartíma veitingarstaðarins eða frá 11.30-23.00 alla daga nema mánudaga