(að) kveðja – kortlagning minninga

2. August, 2024 - 31. August, 2024

Ásta Kristín Knight Þorsteinsdóttir opnar myndlistarsýningu í Glettu. Hún útskrifaðist af textílbraut Myndlistaskólans í Reykjavík vorið 2024. Hún vinnur með textíl og textílaðferðir á fjölbreyttan hátt, sérstaklega heillar vefnaður.
Verkin hennar eru oft lágstemmd og jafnvel kraftmestu verkin bera með sér ró og yfirvegun. Hún fæst oft við gróður, landslag og form úr náttúrunni og kýs að vinna mest með náttúruleg efni. Smáatriði, áferðir og nærmyndir eru áberandi í verkunum hennar.
Sýningin, (að) kveðja -kortlagning minninga, fæst við minningar tengdar landslagi. Hún ólst upp á Borgarfirði og lítur á sýningunni til baka til landslags bernskunna