Vinnustofa í greiningu grasa og stara

17. August, 2024 - 18. August, 2024

Tvær grasaguddur stefna á að halda vinnustofu í greiningu grasa og stara í Loðmundarfirði helgina 17.-18. ágúst.
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu í skála Ferðafélagsins og koma með eigin mat en vinnustofan er ókeypis.
Gott er að hafa með flórubækur ef fólk á og vatnsheld föt + stígvél.
Skráning í síma 898-5693 eða á [email protected] fyrir 10. ágúst