Með hækkandi sól – Vaðhorn

25. May, 2024

Gengið verður á hin tignarlegu Vaðhorn frá bílastæði við Fáskrúðsfjarðargöng. Leiðin liggur upp Lambadal og verður farið á syðra Vaðhornið sem er gríðarlega skemmtilegt útsýnisfjall.
Mesta hæð: 1.120 m
Hækkun: 1.020 m
Vegalengd alls: 14 km
Göngutími: 7-8 klst.
– Hlýr, vind og vatnsheldur fatnaður
– Kraftmikið nesti og drykkir
– Góðir gönguskór
– Keðjubroddar, Stafir ef vill.
Ath. við getum lánað brodda ef vantar.
Brottför kl 8:00 frá N1 Egilsstöðum og 9:00 frá upphafsstað gönguleiðarinnar við bílastæði við Fáskrúðsfjarðargöngin.
Verð: 5.000,-