Austurland Freeride Festival: Ferð með Rúnari Pétri í Vöðlavík

1. March, 2023 - 3. March, 2023

Um er að ræða skemmtilega 2ja daga ferð undir leiðsögn Rúnars Péturs, þar sem skinnað verður frá topplyftu Oddsskarðs niður í Vöðlavík, gist í 2 nætur og endað með að skíða frá topplyftu Oddsskarðs í Randullfs-sjóhús á Eskifirði.

Dagskrá ferðarinnar:

Miðvikudagur 1. mars

  • 7:30 – Flug úr Reykjavík
  • Mæting á Mjóeyri kl 9:30
  • Raðað verður niður í trúss. Miðað er við að það sé ein taska á mann og svefnpoki
  • Lagt af stað kl 10:00 upp í Oddsskarð og þaðan upp með topplyftu
  • Byrjað að skinna og rennt austur af Goðatindi í átt til Vöðlavíkur
  • Rennt niður í Vöðlavík þar sem gestir koma sér fyrir í skála ferðafélags Fjarðamanna
  • Ein stutt ferð í Vöðlavík ef fólk vill
  • Kvöldmatur
  • Fundur hvert á að fara daginn eftir

Fimmtudagur 2. mars

  • Morgunmatur
  • Skinnað upp að tindi og rennt niður
  • Hádegishressing
  • Aftur skinnað, rennt niður að strönd
  • Varðeldur og öl
  • Kvöldmatur
  • Hut quiz í boði Víðis
  • Gist aftur að Karlstöðum í Vöðlavík

Föstudagur 3. mars

  • Morgunmatur
  • Trússið sótt
  • Skinnað í átt að Eskifirði
  • Rennt niður í Eskifjörð
  • Rúta upp í Oddsskarð
  • Upp í topplyftu þar sem verður rennt niður í Randulffs-sjóhús
  • Apré ski partý á Randulffs-sjóhúsi

 

Verð 95.000kr. Innifalið er:

  • Kvöldmatur á miðvikudeginum. Morgunmatur, nesti og kvöldmatur á fimmtudeginum. Morgunmatur og nesti á föstudeginum
  • Gisting í 2 nætur í skála Ferðafélags Fjarðamanna að Karlstöðum í Vöðlavík
  • Fjallaleiðsögn alla ferðina. Rúnar Pétur Hjörleifsson sér um leiðsögnina
  • Trúss með snjósleða eða jeppa
  • Rútuferðir í tengslum við ferðina

ATH taka þarf með sér svefnpoka, skíða/bretta brodda og snjóflóðabúnað. (skóflu, ýli og snjóflóða stöng).

Bókanir hjá Sævari á Mjóeyri í síma 698 6980 eða [email protected]

Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð

Heildardagskrá Austurland Freeride Festival 2023 má sjá hér