Samtal um málefni safna á Austurlandi
Fróðleiksmolinn Reyðarfirði
22. March, 2022
Málþing um safnamál á Austurlandi verður haldið í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði þriðjudaginn 22. mars kl. 13:00 – 16:00
Á þinginu verður skýrslan Aukið samstarf eða sameining safna á Austurlandi kynnt.
Hanna Cristel Sigurkarlsdóttir frá Skaftfelli og Elsa Guðný Björgvinsdóttir frá Minjasafni Austurlands fjalla um fræðslumál safna, tækifæri og áskoranir.
Skúli Björn Gunnarsson frá Skriðuklaustri Fjallar um menningarmiðlun á nýjum tímum.
Elfa Lilja Gísladóttir frá List fyrir alla kynnir vefsíðuna Menning fyrir alla sem er á vegum Listar fyrir alla.
Kaffi
Eftir hlé stýrir Tinna K. Halldórsdóttir vinnustofum um safnamál, markaðsmál safna, fræðslumál safna og stofnun samstarfshóps/safnaklasa á Austurlandi. Niðurstöður vinnuhópa verða kynntar í lokin.
Gestir eru beðnir um að skrá sig fyrirfram hér. Að skráningu lokinni gefst kostur á að velja hvort fólk ætli að mæta á Reyðarfjörð eða taka þátt á vefnum. Sé seinni kosturinn valinn verður hlekkur sendur á þátttakanda eftir að skráningu er lokið.
Allir velkomnir!
Austurbrú ses