LAGASMÍÐAR Á BORGARFIRÐI EYSTRA
17. March, 2022 - 20. February, 2022
Námskeiðið hentar fyrir alla þá, 20 ára og eldri sem vilja gefa sér tíma í að skapa og semja, fá fræðslu um lagasmíðar og hugmyndavinnu, kynnast öðru tónlistarfólki og njóta þess alls í stórbrotnu landslagi Borgarfjarðar eystra.
Um Námið
Fjögurra daga lagasmíðabúðir þar sem lögð er áhersla á bæði kennslu jafnt og sköpun.
Hver dagur byrjar á 90 mínútna fyrirlestri um lagasmíðar, hugmyndavinnu og sköpun.
Þátttakendum er síðan skipt upp í 2-3 manna hópa og markmið hvers dags er að semja lag frá grunni. Kennararnir heimsækja svo alla hópa reglulega yfir daginn og gefa ráð og hjálpa hópunum að sínu markmiði. Að kvöldi skilar hver hópur inn demó af sínu lagi og svo er haldið hlustunar”session” þar sem öll lög dagsins eru spiluð fyrir alla þátttakendur.
Næsta dag eru síðan nýir hópar, þannig að hver aðili verður í þremur hópum yfir námskeiðið og stækkar þannig tengslanetið sitt um muna.
Á laugardagskvöldið verður kvöldvaka þar sem allir þátttakendur eru hvattir til að koma fram, hvort sem það er með því að flytja eitthvað af lögunum sem urðu til í búðunum, syngja sitt uppáhalds lag eða syngja frumsamið.
Námskeiðið er styrkt af verkefninu Betri Borgarfjörður og haldið í samstarfi við Gleymmérei Music.
Nánari upplýsingar og verð
Dagsetningar:
17.-20.mars 2022
Byrjað verður á fimmtudegi klukkan 11:00 og fram á sunnudag kl 16:00.
Fjöldi Þátttakenda:
12-15 manns
Kennarar:
Hildur Kristín tónlistarkona og upptökustjóri
Aldís Fjóla tónlistarkona og CVT kennari
Anna Jóna Dungal, Tónlistarbransaráðgjafi
Verð og greiðslutilhögun:
Helgin kostar kr.79.500
Innifalið í verðinu er:
– Kennsla og leiðsögn kennara.
– Gisting í Bjábjörgum í þrjár nætur, fimmtudag til sunnudags. – sjá https://blabjorg.is/
– Morgun-, hádegis- og kvöldmatur ásamt hressingu í fjóra daga.
– Aðgangur að Musterinu heilsulind.
ATH! Ferðakostnaður er ekki innifalinn.
Við bókun greiðist kr.20.000 í staðfestingargjald sem er óendurkræft.
Semja þarf um greiðslur á eftirstöðvum áður en námið hefst!
Hægt að skipta í allt að fimm greiðslur.
Við hvetjum alla til að athuga með styrkveitingar hjá verkalýðs- og starfsmannafélögum. Athugið að ekki er hægt að fá kvittun fyrir námskeiðinu fyrr en það er fullgreitt.
*ALLAR ÍTARLEGRI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 699-4463 (ALDÍS) EÐA Á NETFANG [email protected]