Allra veðra von – Sirkussýning á Fáskrúðsfirði

4. August, 2021

Allra veðra von – Sirkussýning á Fáskrúðsfirði
Miðvikudaginn 4. ágúst kl. 18:00-19:00
Staðsetning: Búðargrund
Verð: 3.500 kr. (fjölskyldu afsláttur ef keyptir eru 4 miðar)

Allra veðra von – nýsirkussýning fyrir fólk á öllum aldri, utandyra um allt land í sumar!

Hringleikur sýnir ALLRA VEÐRA VON á Fáskrúðsfirði 4. ágúst kl. 18:00 at Búðargrund

Akróbatík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar myndir og loftfimleikar flétta saman sögur af mönnum og veðri.
Hópurinn sýndi verkið á Fáskrúðsfirði sem verk í vinnslu síðasta haust, og það gleður okkur að snúa nú aftur með fullunna sýningu!

Við hvetjum alla til að bóka fyrirfram, enda gerir það okkur kleyft að upplýsa miðahafa ef aðstæður krefjast þess.

Miðasala og nánari upplýsingar:
https://tix.is/is/event/11407/allra-ve-ra-von/

Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur áhorfanda á öllum aldri, auk þess að hljóta Grímuverðlaunin 2021 fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins!

Tveggja daga sirkusnámskeið fyrir börn, nánari upplýsingar hér:
https://www.facebook.com/events/3003252486576803/

Sýningin er styrkt af Sóknaráætlun Austurlands og unnin í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar.