Sólstöðuganga í Stapavík
25. June, 2021
Sólstöðuganga í Stapavík með Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
25. júní kl. 20:00
Brottför frá Tjarnarási 8, Egilsstöðum
Erfiðleikastig: Auðvelt
Ekið frá Ferðafélagshúsinu Tjarnarási að Unaósi og gengið frá bílastæði með perluskiltinu út með Selfljóti. Frítt fyrir 14 ára og yngri. Stapavík er ein af Perlum Fljótsdalshéraðs.
Allar dagsferðir: Verð er 500 krónur og mæting við hús Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8 á Egilsstöðum nema annað sé tekið fram. Fólk er hvatt til að taka þátt í gönguleikjunum Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýlin í göngufæri.
Umsjón: Jón Steinar Benjamínsson