Ferð til fjár
17. April, 2021 - 24. May, 2021
Vorsýning í stássstofu Skriðuklausturs!
Sýningin nefnist „Ferð til fjár“ og unnin í samvinnu HANDVERKS OG HÖNNUNAR og Gunnarsstofnunar og er inntak hennar íslenska sauðkindin. Á sýningunni getur að líta fjölbreytt handverk og listmuni víða að af landinu.
Sýnendur eru:
- Anna Gunnarsdóttir
- Ásthildur Magnúsdóttir
- Hélène Magnússon
- Fræðasetur um forystufé
- Sólóhúsgögn
- Ullarselið
Sýningin stendur frá 17. apríl til 24. maí 2021 á opnunartíma Skriðuklausturs.
Eins og staðan er núna með öllum sóttvarnarfyrirvörum þá er opið á Skriðuklaustri alla daga: í apríl virka daga 12-16 og um helgar 12-17 en í Maí verður opið alla daga 12-17. Í sumar júní, júlí og ágúst er opið 10-18 alla daga. Við reynum að nota facebookina líka til að miðla upplýsingum og við fylgjum tilmælum sóttvarnarembættis svo ef eitthvað breytist þá þurfum við mögulega að breyta líka.