Vínbúðin Neskaupstað óskar eftir starfsmanni

Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingi sem er
tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Hæfniskröfur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar
Starfshlutfall er 68,8%.

VÍNBÚÐIN NESKAUPSTAÐ ÓSKAR EINNIG EFTIR STARFSMANNI Í TÍMAVINNU
Starfshlutfall er breytilegt eftir þörfum.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu
taka mið af þessum gildum.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt
af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði
samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur,
heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af
lipurð, þekkingu og ábyrgð.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Nánari upplýsingar: Þorlákur Ægir Ágústsson – [email protected], 477 1890
og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected], 560 7700
VÍNBÚÐIN NESKAUPSTAÐ