Vínbúðin Neskaupstað óskar eftir starfsmanni

Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingi sem er
tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar
Hæfniskröfur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Starfshlutfall er 68,8%.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Nánari upplýsingar: Þorlákur Ægir Ágústsson – [email protected], 477 1890
og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected], 560 7700

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu
taka mið af þessum gildum.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt
af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði
samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur,
heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af
lipurð, þekkingu og ábyrgð.