Verslunarstjóri Egilsstöðum

Við leitum að öflugum, jákvæðum og þjónustudrifnum verslunarstjóra í verslun okkar á Egilsstöðum

Starfið felst í daglegri stjórnun verslunarinnar ásamt innkaupum og pöntunum í samræmi við stefnu fyrirtækisins. Verslunarstjóri þarf að þekkja öll störf í versluninni, er fyrirmynd annars starfsfólks og gefur gott fordæmi með framkomu sinni. Vinnutími er frá 10-18 virka daga og laugardaga eftir samkomulegi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á almennum rekstri verslunarinnar.
  • Dagleg stjórnun og starfsmannahald.
  • Vaktaskipulag og mönnun vakta ásamt umsjón með vali, ráðningum og þjálfun starfsfólks í samráði við mannauðsstjóra.
  •  Umsjón með vörupöntunum og vöruúrvali verslunar í samráði við vörustjóra/ vöru­merkjastjóra.
  • Umsjón og ábyrgð á útliti verslunar og framstillingum í samráði við rekstrarstjóra og vörustjóra/vörumerkjastjóra.
  • Sala og þjónusta við viðskiptavini ásamt almennum verslunarstörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum skylirði
  • Söluhæfileikar og framúrskarandi þjónustulund.
  • Þekking og áhugi á vörum verslunarinnar kostur.
  • Reynsla af verslunarstjórn kostur.
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og gott viðmót.
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sæunn Ósk Sæmundsdóttir, sviðsstjóri smásölusviðs, [email protected], og Svava Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]
Secret Link