Verkstjóri Vegagerðarinnar í Fellabæ

Starf verkstjóra við þjónustustöðina í Fellabæ er laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöð í Fellabæ og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við markmið Vegagerðarinnar.

Starfssvið:

Almenn þjónusta og viðhald vega sem og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvar í Fellabæ. Viðhald og þjónusta á malarvegum og og bundnu slitlagi, umsjón með lagerhaldi og áhaldahúsi. Eftirlit og stjórnun verkefna í sumarþjónustu sem og samskipti við verktaka. Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar. Samskipti og eftirlit með verktökum í vetrarþjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Almenn menntun
• Reynsla af stjórnun
• Verkstjórnarnámskeið er æskilegt
• Meirapróf æskilegt
• Góð íslenskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og Sambands stjórnendafélaga. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2018. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið [email protected]. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Jóhannsson yfirverkstjóri þjónustustöðinni í Fellabæ í síma 522 1971 og í gegnum netfangið [email protected] eða Davíð Þór Sigfússon byggingafræðingur í síma 522 1945 og í gegnum netfangið [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Secret Link