Vélstjóri/tæknimaður í tæknideild Brims hf
Brim hf., leitar eftir starfsmanni til starfa í tækni- og viðhaldsdeild félagsins á Vopnafirði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í samhentum starfshópi. Unnið er hluta til af árinu í vaktavinnu.
Brim leggur áherslu á að innan félagsins starfi hæft og traust starfsfólk sem af fagmennsku og ábyrgð tryggir sjálfbæra nýtingu og hagkvæmni í umgengni við auðlindina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Alhliða viðhald og umsjón á ýmsum tækni- og vélbúnaði s.s. Frystikerfi og Baadervélum
- Daglegt viðhald og eftirlit með tækjum og búnaði
- Almennar viðgerðir á uppsjávarsviði
- Bakvaktir, vaktsími vélstjóra þegar ekki er vinnsla í húsinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. vélstjóramenntun, rafvirki, vélfræðingur eða sambærileg er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og frumkvæði
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg