Vélaverkstæði auglýsir laus störf á Reyðarfirði
Launafl óskar eftir að ráða starfsmenn í fullt starf á vélaverkstæði fyrirtækisins á Reyðarfirði.
Launafl er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð með fjölbreytta starfsemi í flestum greinum sem lúta að iðnaði.
Í fyrirtækinu er skemmtilegur starfsandi og öflugt starfsmannafélag.
Góð laun eru í boði og tækifæri til starfsþróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn vélvirkjastörf
- Samskipti við viðskiptavini
- Nýsmíði, viðgerðir og bilanagreiningar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf á sviði vélvirkjunar eða skyldum fagsviðum æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Mikil reynsla í faginu er kostur
- Ökuréttindi