Umsjón Verslunar – Útibú Lyfju Seyðisfirði
Við leitum að umsjónarmanni fyrir Útibú Lyfju á Seyðisfirði
Starfið felst í yfirumsjón með búð og framstillingum auk þess að sinna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Umsjónarmaður ber ábyrgð á að búðin sé ávallt hrein og snyrtileg, tekur á móti vörum, bókar reikninga, fylgist með birgðum og er í miklum samskiptum við starfsfólk vörusviðs.
Hæfniskröfur
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum í síma 471-1273 .
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.