Tónfræðakennari

Um er að ræða 50-60% starf, sem getur falið í sér kennslu allt frá grunnnámi í tónfræði til framhaldsnáms í tónfræðagreinum samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla. Kennsla fer fram eftir skólatíma hjá grunnskólanum og hluti kennslunnar á sér stað um kvöld. Til greina getur komið að ráða fleiri en einn kennara í lægra starfshlutfall. Um er að ræða tímabundna ráðningu fyrir vorönn 2023, en með góðum möguleika á framtíðarstarfi og þá hugsanlega fullu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla tónfræðigreina

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Færni í íslensku

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Sóley Þrastardóttir, skólastjóri, í síma 470 0570 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember og hægt er að sækja um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“

Secret Link