Þroskaþjálfi /Iðjuþjálfi

Egilsstaðaskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa og/eða iðjuþjálfa til starfa við stoðþjónustu skólans í 80-100% starf.

Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður. Lög er áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu og þverfaglegt samstarf. Skólinn er að innleiða hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og Leiðsagnarnáms.

Æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa í ágúst eða eftir nánara samkomulagi.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri stoðþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með nemendum og sér um þjálfun í samræmi við þarfir einstaklinga.
  • Veitir forráðamönnum og starfsmönnum ráðgjöf og leiðbeiningar sem lúta að einstaklingsbundnum úrræðum fyrir nemendur.
  • Sinnir þverfaglegu samstarfi innan og utan skólans.
  • Vinnur að því að efla iðju og þátttöku nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið námi í þroskaþjálfun eða iðjuþjálfun.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
Secret Link